Tónfræðivefurinn tonfraedi.is
Ókeypis vefsvæðið Tónfræði.is veitir stuðning við nám í tónfræði og tónheyrn, en á síðunni er m.a. að finna gagnvirk vinnublöð sem gefa tónlistarnemendum kost að æfa sig á eigin forsendum, jafnt í tónlistarskólanum sem á heimilinu.
Vettvangar
Tónlistarnám í tónlistar- og listaskólum, Tónmennt í skóla- og frístundastarfi
Hljóðfæraflokkar
Annað
Námsstig tónlistarskóla
Grunnnám, Miðnám
Viðfangsefni
Kennslufræði og kennsluhættir, Tónfræðagreinar (tónfræði, hljómfræði, tónlistarsaga)
Gerð efnis
Vefsíður

Á Tónfræði.is er m.a. að finna gagnvirk vinnublöð í tónfræði, hlustunaræfingar, tónlistarleiki og efni í tónlistarsögu. Vefsvæðinu er þannig ætlað að styðja við tónlistarnám og nemendum er gefinn kostur að æfa sig á eigin forsendum, jafnt í tónlistarskólanum sem á heimilinu. Hægt er að nota tæki eins og spjaldtölvur eða síma til að vinna verkefnin, en öll vinnublöðin eru sett upp þannig að tölvan fer sjálfkrafa yfir verkefnið og gefur einkunn. Nemandinn getur þá sjálfur ákveðið að reyna aftur ef hann vill læra efnið betur. Verkefnin eru hönnuð miðað við kröfur aðalnámskrár tónfræðagreina og henta bæði nemendum í grunnnámi og miðnámi.
