Höfundur:

Kristinn Örn Kristinsson

Kennslufræði og píanótækni

Vefsíðan geymir m.a. skrif höfundar um sértæka kennslufræði píanósins í tengslum við kennslustörf hans við LHÍ – auk leiðbeininga, myndbanda og samantekta á efnistökum víðsvegar að.

Vettvangar

Tónlistarnám í tónlistar- og listaskólum

Hljóðfæraflokkar

Hljómborðshljóðfæri

Námsstig tónlistarskóla

Viðfangsefni

Kennslufræði og kennsluhættir, Spuni og skapandi leiðir í kennslu, Stafræn tækni og tónlist

Gerð efnis

Leiðbeiningar, Myndbönd, Vefsíður

Vefsíðan er í sex megin hlutum. Á framsíðu eru hugleiðingar höfundar um upphaf síðunnar og tilurð hennar, en hún var styrkt af Starfsmenntunarsjóði Félags íslenskra hljómlistarmanna.

 

Um kennslufræði píanósins eru almennar hugleiðingar um kennslu, markmið og hlutverk kennarans, af hverju við viljum kenna tónlist, starf píanókennarans og námsferli nemandans, hvað ber að varast og viðhorf kennara til kennarastarfsins.

 

Undir flipanum Fyrsti píanótíminn eru tíundaðar hugmyndir nokkurra aðila um hvernig fyrsti tíminn gæti farið fram. Þar er vitað í James Bastien, Joan Last, Fanny Waterman, Suzuki og Tim Topham.

Tækni píanóleiksins eru hugleiðingar höfundar um ýmis tækniatriði píanóleiksins ásamt stuttum myndböndum til að frekari útskýringa.

 

Píanóskólar, þar er fjallað almennt um píanókennslu, mismunandi nálganir píanóskóla, hvernig megi flokka þá og að lokum örstutt úttekt á fjórtán misþekktum píanóskólum,

Undir flipanum Annað er síðan umfjöllun um mismunandi persónuleika nemenda, heimildaskrá og listi yfir valdar handbækur. Einnig eru þar vísanir á ýmsar gagnlegar síður um píanókennslu ásamt stuttri umsögn

Scroll to Top