Hugarflug um Tónvarpið á svæðisþingum

Á nýliðnum svæðisþingum Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra sem voru haldin í Reykjavík, á Ísafirði, Fáskrúðsfirði, Ólafsfirði og í Reykjanesbæ var kallað sérstaklega eftir ábendingum og umræðum sem gætu komið að gagni við þróun Tónvarpsins. 

Kennarar og stjórnendur fögnuðu þessu framtaki enda hefur lengi verið kallað eftir því að fjölga tækifærum til faglegs samtals og samvinnu á sviði tónlistarmenntunar.  
Mjög góðar umræður sköpuðust og áfram verður unnið úr þeim fjölmörgu ábendingum, hugmyndum og tillögum sem þátttakendur lögðu fram.

Tónvarpið sem samfélag

Áhersla var lögð á að Tónvarpið gæti nýst á fjölbreyttan hátt – ekki aðeins sem upplýsingasíða, heldur sem lifandi samfélag þar sem fagfólk getur tengst, miðlað hugmyndum, lært hvert af öðru og þannig þróað starf sitt á sviði tónlistar. 
Meðal þeirra ábendinga sem komu fram á svæðisþingunum um möguleika Tónvarpsins og það sem í því gæti falist voru:

Aðgengi að vönduðu og fjölbreyttu námsefni, sem styður við kennslu á ólíkum stigum og í mismunandi greinum tónlistar. 

Stuðningur við nýja kennara, t.d. í formi leiðbeininga og hagnýtra verkfæra sem auðvelda fyrstu skrefin í starfi. 

Hugmyndir um starfsþróun og símenntun, þar sem kennarar geta sótt sér fræðslu, námskeið og efni sem styður við faglega þróun. 

Umræða um heilsu og starfsumhverfi, þar sem tekið er á álagi, líkamlegri og andlegri vellíðan kennara, og hvernig hægt er að skapa heilbrigt og sjálfbært starfsumhverfi. 

Tónvarpið var þannig rætt sem mögulegur lykilvettvangur fyrir þverfaglegt samtal, miðlun og tengingu innan tónlistarskólakerfisins sem og milli ólíkra skólagerða. Auk þess var rætt um möguleika á samstarfi við hina ýmsu aðila og stofnanir sem starfa að málefnum tónlistar á Íslandi, sérstaklega varðandi starfsþróunarmöguleika og skólaþróun.

 

Scroll to Top