Þróunarverkefnið KIL

Hvernig getum við borið kennsl á og unnið gegn útilokun (exclusion)
í tónlistarskólum? Hvernig geta skólarnir orðið að meira inngildandi afli í samfélaginu?


Þessar spurningar voru lagðar til grundvallar norræns þróunarverkefnis Kulturskolen sem inkluderende kraft (KIL) sem unnið var á árunum 2018-2019 en um það var fjallað í erindinu „Straumar og stefnur“ á svæðisþingum tónlistarskóla 2024 eins og einhver ykkar kannski muna.

Markmið þróunarverkefnisins var að vinna að þróun inngildandi starfshátta í tónlistar- og listaskólum, auka aðgengi fólks með fjölbreyttan bakgrunn og ná til nýrra íbúa, flóttafólks og annarra sem standa utan hefðbundinna nemendahópa skólanna. Verkefninu var ætlað að svara þörf fyrir aukna fjölbreytni í tónlistar- og listaskólum og styðja við þróun menningarstefnu sem byggir á inngildingu og samfélagslegri þátttöku.  Ein lokaafurð verkefnisins er „manifestó“ undir yfirskriftinni Þú átt rétt á listum og menningu! og er því ætlað að tala beint til barna og ungs fólks á Norðurlöndunum.

Það er mikill vöxtur og gróska á sviði rannsókna á sviði tónlistar- og listaskóla í okkar nágrannalöndum og það væri frábært að sjá sömu þróun eiga sér stað hér á landi. Tónvarpinu er meðal annars ætlað að vera vettvangur samtals um það góða starf sem víða er unnið í tónlistarskólum á landsvísu og einnig hvati til aukinnar þróunar. Þar geta norrænu þróunarverkefnin verið góð fyrirmynd. Það eru spennandi tímar framundan!

Það er gaman að segja frá því að Anders Rønningen sem leiddi umrætt þróunarverkefni skrifar kafla um það í bókina Music Schools in Changing Societies (2024) sem fjallað er um hér í Púlsinum. Kaflinn ber heitið No kulturskole is an island og hér má nálgast hann í lauslegri íslenskri þýðingu.

Þróunarverkefnið KIL
Scroll to Top