Fagfélög og faghópar geta sótt um styrki hjá Kennarasambandi Íslands vegna félagslegra verkefna og starfrækslu, s.s. stjórnarfunda, nefndarlauna og annarra fundarhalda, fræðsluerinda og fyrirlestra, málþinga, ráðstefna, hátíða og keppna en auk ýmissa verkefna innanlands er hægt að sækja um styrki vegna samstarfs við erlend fagfélög.
Við úthlutun styrkja er horft til hlutfallslegs fjölda félagsfólks KÍ á félagaskrá viðkomandi félags og miðast hámarksstyrkur á ári við eftirfarandi fjölda:
færri en 30 félagsmenn / hámarksstyrkur á ári 100.000 kr.
31 – 100 félagsmenn / hámarksstyrkur á ári 250.000 kr.
101 og fleiri félagsmenn / hámarksstyrkur á ári 400.000 kr.
Nánari upplýsingar og reglur um styrkveitingar má nálgast hér.
Fagfélögum og faghópum stendur auk þess til boða ýmis þjónusta og stuðningur. Þar má nefna aðgang að vinnuaðstöðu og fundarrýmum með aðgangi að kaffivél, vistun heimasíðna sem undirsíður hjá KÍ er félögum að kostnaðarlausu og hægt er að óska eftir aðstoð hjá FT við stofnun faghópa og fagfélaga.
