Stofnun faghóps um nýsköpun í tónlistarkennslu og skólastarfi 


Þessa dagana stendur Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum fyrir stofnun faghóps um nýbreytni í kennslu og nýsköpun í skólastarfi. Möguleikar tónlistar til þess að hafa áhrif á menntun, þroska og líðan barna og ungmenna eru óþjótandi en oft vannýttir. Faghópurinn mun meðal annars leita leiða til að finna nýja farvegi svo að fjölbreytt tónlistariðkun nemenda fái meira vægi í öllu skólastarfi. Öll þau sem eru áhugasöm um nýbreytni í kennslu og nýsköpun í skólastarfi eru hvött til þess að koma að stofnun faghópsins með því að taka þátt í málstofunni Faghópur um nýbreytni í kennslu og nýsköpun í skólastarfi í Umræðutorgi Tónvarpsins.

Fagfélög og faghópar á sviði tónlistar gegna mikilvægu hlutverki sem vettvangur faglegs samtals og samstarfs. Slík starfsemi getur skapað dýrmæt tækifæri til að deila reynslu og þekkingu og rækta tengsl við starfsfélaga. Starfræksla fagfélaga og faghópa getur opnað ýmsa starfsþróunarmöguleika og stuðlað að samvinnu- og þróunarverkefnum.

Í Tónvarpinu verður að finna upplýsingar um ýmis fagfélög á sviði tónlistar, hlutverk þeirra og markmið auk upplýsinga um mögulega styrki, þjónustu og stuðning við fagfélög og faghópa.

Scroll to Top