Hvernig geta tónlistarskólar þróast í takt við samfélagsbreytingar og kröfuna um aðgengi, jöfnuð, víðtæka þátttöku og samfélagslega ábyrgð ?

Leitast er við að svara þessum spurningum í bókinni Music Schools in Changing Societies. How Collaborative Professionalism can Transform Music Education en bókin kom út 2024. Bókin byggir að miklu leyti á efni rannsóknarráðstefnu „Europian Music School Symposium“ sem fór fram 2019. Nánar er fjallað um rannsóknarráðstefnurnar á öðrum stað í Tónvarpinu.

Í bókinni eru kynnt dæmi um nýstárlegar aðferðir og samstarfshugmyndir frá nokkrum Evrópulöndum auk þess að greina þær áskoranir sem fylgja faglegu umbreytingastarfi. Meðal niðurstaðna bókarinnar er að kalla þurfi eftir endurskilgreiningu á hljóðfæra- og söngkennslu, finna þurfi jafnvægi milli tónlistarnáms sem miðar að undirbúningi fyrir tónlist sem ævistarf og þess að stuðla að þróun tónlistarþroska fjölbreytts nemendahóps á einstaklingsmiðaðan hátt. Svo er það hin stóra áskorun sem tónlistarskólar þurfa að horfast í augu við, sem er hvernig ná megi til jaðarsettra hópa og fjölskyldna sem þekkja ekki til þeirra tækifæra sem eru til staðar á sviði tónlistarmenntunar og gildis hennar fyrir börn og ungmenni.

Tónvarpið mun kynna reglulega til sögunnar áhugaverðar bækur sem tengjast faglegri umfjöllun um tónlist á breiðum grundvelli. Fylgist með!

Hér má sjá lauslega þýðingu á inngangskafla bókarinnar sem gefur vonandi góða mynd af inntaki hennar.

Music Schools in Changing Societies
Scroll to Top