Fjórða evrópska rannsóknarráðstefnan um málefni tónlistarskóla haldin 2026

Í Púlsinum er vakin athygli á ráðstefnu um málefni tónlistarskóla sem haldin verður í Vínarborg haustið 2026. Yfirskrift ráðstefnunnar er: The Ethical Horizons of Music and Art Schools eða Siðferðileg sjónarhorn tónlistar- og listaskóla og fer hún fram dagana 25.-26. september. Kallað hefur verið eftir erindum og hægt er að senda þau inn á tímabilinu 15. janúar til 15. mars 2026. Skráning á ráðstefnuna verður opin frá 15. apríl til 31. ágúst.

Ráðstefnan er sú fjórða í röðinni, en frá árinu 2017 hafa verið haldnar rannsóknarráðstefnur, annað hvert ár, um málefni tónlistarnáms og -kennslu. Ráðstefnurnar eru haldnar í samstarfi Evrópusamtaka tónlistarskóla (EMU), Samtaka austurrískra tónlistarskóla (KOMU) og Stofnunar rannsókna og starfshátta í tónlistarfræðslu (IMP), deildar innan Tónlistar-og sviðslistaháskólans í Vín (mdw) en háskólinn átti einmitt frumkvæði að fyrstu ráðstefnunni.

Tónlistarskólaráðstefnurnar – leiðandi vettvangur á alþjóðavísu

Áherslan hefur frá upphafi verið á mikilvægi þess að stöðugt samtal eigi sér stað milli fræðimanna, fagfólks og hagsmunaaðila en ráðstefnurnar eru hugsaðar sem leiðandi alþjóðlegur vettvangur fyrir fræðimenn, kennara, stjórnendur, núverandi og fyrrverandi nemendur, háskólakennara, fulltrúa tónlistarskólasamtaka, sveitarfélög og aðra sem vinna að þróun „öflugra, hvetjandi og þrautseigra tónlistarskóla“.

Evrópsku tónlistarskólaráðstefnurnar hafa verið gríðarleg innspýting inn í faglega umræðu um tónlistarnám og -kennslu á undanförnum árum í Evrópu og víðar en til viðbótar við viðburðina sjálfa eru gefin út ráðstefnurit eða bækur í tengslum við meginþemu hverrar ráðstefnu. Bókin Music Schools in Changing Societies sem er til umfjöllunar í Púlsinum er einmitt dæmi um það.

Hér er hlekkur á heimasíðu ráðstefnanna, Europian Music School Symposium, en þar má einnig sjá það efni sem hefur verið gefið út í tengslum við ráðstefnurnar.

Fjórða - European Music Schools Symposium
Scroll to Top