Nú er um að gera að taka frá dagana 22.-24. september 2026, en þá verður Norræna söngráðstefnan, (Nordisk Sangsymposium) 2026, haldin í Óðinsvéum í Danmörku. Ráðstefnan er vettvangur fyrir fræðifólk, kennara, listafólk og öll þau sem starfa við, rannsaka eða hafa áhuga á söng og hlutverki söngs í samfélaginu.
Kallað er eftir erindum, vinnustofum eða kynningum á verkefnum sem geta veitt innblástur og varpað fjölbreyttu ljósi á söng og söngstarf. Tillögur að framlögum til ráðstefnunnar þurfa að hafa borist 1. febrúar 2026.
Sérstök áhersla verður lögð á að kynna nýjustu rannsóknir og verkefni sem tengjast söng í víðu samhengi og í þetta sinn verða fjögur meginþemu:
Söngur og heilsa
Söngur og skóli
Söngur og samfélag
Söngur sem listgrein
Allar upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á heimasíðu hennar.
