Villitíð – tónlistarævintýri á evrópskum karnivölum
Námsefni eftir hljóðfæraleikarann, tónskáldið og tónlistarkennarann Charles Ross sem búsettur hefur verið á Íslandi um árabil. Námsefnið fjallar um „hina villtari hlið“ evrópskar þjóðlagatónlistar sem á rætur sínar að rekja til forneskju, hjátrúar, heiðinna siða og hátíða.
Hljóðfæraleikur og söngur, Stafræn tækni og tónlist, Tónlistararfur og tónmenning
Gerð efnis
Hljóðskrár, Námsbækur, Nótur, Rafbækur
Villitíð er mikið myndskreytt og fjallað er ítarlega um uppruna tónlistarinnar og samfélagið sem hún sprettur úr. Námsefnið hvetur til tilraunastarfsemi með lögin og tónefnið og nálgast tónlistina á mjög skapandihátt. Bókin er gefin út sem netbók á PDF-sniði af Warén Music, og henni fylgja hljóðskrár af öllu efni bókarinnar.