TónÆði – námsefni í tónmennt
TónÆði er námsefni í tónfræði, bæði fyrir grunn- og tónlistarskóla. Kennslan fer fram á myndbandsformi og fylgja með verklegar samspilsæfingar og vinnubók.
Vettvangar
Tónlistarnám í tónlistar- og listaskólum, Tónmennt í skóla- og frístundastarfi
Hljóðfæraflokkar
Tónfræðagreinar
Námsstig tónlistarskóla
Grunnnám
Viðfangsefni
Kennslufræði og kennsluhættir, Stafræn tækni og tónlist, Tónfræðagreinar (tónfræði, hljómfræði, tónlistarsaga)
Gerð efnis
Leiðbeiningar, Myndbönd, Námsbækur, Vefsíður
Í fyrstu myndbandaröð TónÆðis fer Hafþór Agnar Unnarsson með hlutverk fjörugs kennara, sem fléttar alls kyns vangaveltum og óvæntum uppátækjum saman við nýstárlega byrjendaleiðsögn og fræðslu um grundvallaratriði í nótnalestri og ritun. Ný efnisatriði eru kynnt á markvissan hátt og skýr áhersla lögð á afmörkuð viðfangsefni í hverju skrefi.
