Púlsinn vekur athygli á útgáfu bóka sem eru í opnum aðgangi á netinu en hér er dæmi um eina slíka: The Politics of Diversity in Music Education (2021). Ritstjórar eru Alexis Anja Kallio, Heidi Westerlund, Sidsel Karlsen, Kathryn March og Eva Sæther.
Bókin fjallar um pólitísk kerfi og ferla sem móta og skapa skilning á fjölbreytileika í og í gegnum tónlistarmenntun. Nýleg bylgja þjóðernishyggju, bókstafstrúar, verndarhyggju og aðskilnaðarhugsunar undirstrikar mikilvægi þess að tónlistarmenntun gangi lengra en yfirborðskenndar stefnuyfirlýsingar eða að eingöngu sé talað um fjölbreytileika við hátíðleg tækifæri.
Bókin sameinar vandaða fræðilega greiningu á því hvernig tónlistarmenntun viðheldur eða raskar ríkjandi hugmyndum um samfélagið, ásamt því að greina reynslu af vettvangi við þær flóknu aðstæður sem geta komið upp þegar tekist er á við fjölbreytileika í framkvæmd. Í köflum bókarinnar er meðal annars fjallað um:
- Hvernig tónlistarkennarar feta stigu síbreytilegs pólitísks landslags samfélags og stefnumótunar stjórnvalda,
- hvernig hugmyndir um fjölbreytileika í tónlistarmenntun geta útvíkkað hefðbundin mörk,
- hvaða áhrif fjölbreytileiki hefur á forystu í tónlistarmenntun.
Bókin er aðgengileg á netinu og má finna hér en þar er einnig hægt að velja staka kafla til að hlaða niður eftir því hvað vekur áhuga.
Á sömu vefsíðu er einnig að finna ýmislegt annað efni tengt tónlist og tónlistarnámi og sem gæti vakið áhuga lesenda.
