Höfundur:

Magnea Gunnarsdóttir

Nótnaeyjan – Inngangur að tónfræði

Námsefni ætlað nemendum sem eru að stíga sín fyrstu skref inn í heim tónfræðinnar. Leitast er við að kynna og þjálfa markvisst veigamestu undirstöðuþætti í nótnalestri og -skrift. Bókin nýtist einnig sem þjálfunarefni í grunnatriðum tónfræðinnar.

Vettvangar

Kennsla yngri barna, Tónlistarnám í tónlistar- og listaskólum, Tónmennt í skóla- og frístundastarfi

Hljóðfæraflokkar

Tónfræðagreinar

Námsstig tónlistarskóla

Grunnnám

Viðfangsefni

Kennslufræði og kennsluhættir

Gerð efnis

Námsbækur

Í bókinni er unnið með:

  • Heiti og tilgang eftirtalinna hugtaka í nótnaritun og hlutverk þeirra:

– Nótnastrengur, lína, bil, nótnahaus, aukastrik, skref, stökk, slag, nótnaleggur, fáni, bjálki, nóta, þögn 

  • Nótnanafnaröðina c-d-e-f-g-a-h, bæði upp og niður
  • Heiti nótna á streng í G-lykli* – og að skrifa nótnahausa á streng.
  • Nótur og þagnir í eftirfarandi lengdargildum:

– Heil, hálf, fjórðaparts, áttundaparts og sextándaparts.

  • Að skrifa nótur og þagnir í ofantöldum nótnagildum.

* ATH: Sérstakt námsefni fyrir F-lykil og C-lykil er væntanlegt.

Scroll to Top