Velkomin í Tónvarpið – samstarfsvettvanginn okkar!

Tónvarpið hefur nú litið dagsins ljós, en vefnum er ætlað að styðja við faglegt samtal og samstarf í tónlistarmenntun, iðkun tónlistar og miðlun. Hugmyndin sem býr að baki Tónvarpinu er að skapa fleiri tækifæri fyrir til tónlistarfólk, kennara, nemendur, foreldra, fagfólk, menntastofnanir og öll þau sem vilja efla tónlistarlíf á Íslandi til að deila hugmyndum, þekkingu og reynslu á sviði tónlistar.

Tónvarpið er hannað sem notendadrifinn vefur sem þýðir að meirihluti þess efnis sem þar verður að finna mun byggja á umræðum og þátttöku þeirra sem vilja nýta sér þennan nýja vettvang. Margt smátt gerir eitt stórt svo við í Tónvarpsteyminu hvetjum ykkur eindregið til að skoða ykkur um í Púlsinum, taka þátt í spjallinu á Umræðutorginu og láta vita af sniðugum verkfærum í Verkfæraskúrnum

Við hlökkum til samtalsins og bindum vonir við að þróa Tónvarpið áfram í sem nánustu samstarfi við áhugafólk um tónlist og tónlistarmenntun, þar á meðal þá faghópa og fagfélög sem hafa verið leiðandi í faglegri þróun og stuðningi við tónlistarfólk og tónlistarlíf á Íslandi   

Við vekjum athygli á málstofunni Tónvarpið – mótum það saman sem er að finna í Umræðutorginu, en þar er hægt að koma ábendingum á framfæri og góðum hugmyndum.

Tónvarpið
Scroll to Top