ARFURINN I & II
Sveigjanlegar útsetningar á íslenskum þjóðlögum fyrir samspil strengjanemenda á grunnstigi. Lagavalið er fjölbreytt, bæði er þar að finna þekkt og vinsæl þjóðlög sem sungin eru í leik- og grunnskólum og eins lög sem nemendur þekkja síður.
Vettvangar
Óskilgreint, Tónlistarnám í tónlistar- og listaskólum, Ýmis tónlistarstarfsemi
Hljóðfæraflokkar
Annað, Strokhljóðfæri
Námsstig tónlistarskóla
Grunnnám
Viðfangsefni
Hljóðfæraleikur og söngur, Kennslufræði og kennsluhættir, Tónlistararfur og tónmenning
Gerð efnis
Hljóðskrár, Leiðbeiningar, Nótur, Vefsíður
Arfurinn er lokaverkefni í meistaranámi í söng- og hljóðfærakennslu við LHÍ, þar sem höfundur sameinar þrjú hugðarefni sín; íslenskan þjóðlagaarf, skapandi starf í tónlistarnámi og strengjakennslu. Verkefnið samanstendur af sex sveigjanlegum útsetningum á íslenskum þjóðlögum fyrir samspil strengjanemenda á grunnstigi og fræðilegri greinargerð um fræðilegan bakgrunn og sjálft vinnuferli verkefnisins. Útsetningarnar eru allar eins uppbyggðar. Hverri laglínu fylgja þrjár fylgiraddir á mismunandi erfiðleikastigi sem henta allt frá byrjendum til nemenda sem lokið hafa grunnstigi. Tveimur útsetninganna fylgja spunaraddir með tónefni. Lagavalið er fjölbreytt, bæði er þar að finna þekkt og vinsæl þjóðlög sem sungin eru í leik- og grunnskólum og eins lög sem nemendur þekkja síður.
Arfinum er ætlað að stuðla að varðveislu og miðlun menningararfsins, auka framboð á þjóðlagatengdu námsefni fyrir strengjanemendur á grunnstigi og kynna nemendur og kennara fyrir þeim möguleikum sem felast í íslenskri þjóðlagatónlist.
Arfurinn II er sjálfstætt framhald Arfsins I og er safn 6 sveigjanlegra útsetninga á íslenskum þjóðlögum sem tengjast jólum og áramótum
(Mynd: Magnús Ólafsson, um 1920)
