Bókin – kennslubók í skapandi þáttum tónlistarkennslu
Bókin er kennslubók í skapandi þáttum tónlistarkennslu. Í henni er farið í spuna, tónsmíðar og leik eftir eyra, á fjölbreyttan, léttan og leikandi máta. Kennslubókin er ætluð byrjendum og fylgir nemendum fram að grunnprófi.
Vettvangar
Óskilgreint, Tónlistarnám í tónlistar- og listaskólum
Hljóðfæraflokkar
Annað, Tréblásturshljóðfæri
Námsstig tónlistarskóla
Grunnnám
Viðfangsefni
Kennslufræði og kennsluhættir, Spuni og skapandi leiðir í kennslu, Tónsmíðar
Gerð efnis
Leiðbeiningar, Námsbækur, Nótur
Viðfangsefnin snúa að kennslu spuna, tónsmíða og leiks eftir eyra. Eitt meginmarkmiða með Bókinni er að efla börn í tónlistarnámi til þess að skapa sína eigin tónlist og öðlast öryggi og færni á sitt hljóðfæri út frá eigin hugsunum og tilfinningum.
Allnokkrar rannsóknir liggja fyrir um tónlistarsköpun nemenda. Sýna þær fram á að skapandi tónlistarkennsla efli færni nemenda í námi sínu og veiti þeim sjálfstraust til túlkunar eigin hugmynda í tónlistariðkun sinni.
Bókin inniheldur kennsluefni fyrir nemendur frá upphafi námsins og fram að grunnprófi. Efni hennar er skrifað fyrir nemendur í klarínettuleik, en er hæglega hægt að nota einnig fyrir önnur hljóðfæri.
