Höfundur:

Unnur Malín Sigurðardóttir

Íslensk þjóðlög í tónmenntastofunni

Heimasíða með fróðleik og verkefnum fyrir tónmenntakennslu, þar sem leitast er við að skapa aðgengilega uppsprettu verkefna og hugmynda sem tónmenntakennarar geta nýtt sér í kennslu á íslenskum þjóðlagaarfi með nemendum á grunnskólaaldri.

Vettvangar

Tónmennt í skóla- og frístundastarfi, Ýmis tónlistarstarfsemi

Hljóðfæraflokkar

Námsstig tónlistarskóla

Viðfangsefni

Kennslufræði og kennsluhættir, Tónlistararfur og tónmenning

Gerð efnis

Hljóðskrár, Leiðbeiningar, Nótur, Vefsíður

Á síðunni eru hugmyndir að fjölbreyttum verkefnum, útsetningar fyrir skólahljóðfæri, auðlesinn fróðleikur um íslensk þjóðlög og fjöldi tengla á ítarefni sem finna má á netinu. Með útsetningunum fylgja hefðbundnar nótur, prentefni með einfaldri nótnaskrift til að einfalda innlögn, hljóðskrá og MuseScore-skrá til að kennarar geti aðlagað útsetningarnar að sinni kennslu. Með flestum útsetningum og verkefnum fylgja hugmyndir að kveikjum, umræðupunktum, aukaverkefnum og upphitunum. Öll verkefnin eru tengd hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá.

Síðan er afrakstur lokaverkefnis höfundar til B.Ed-prófs í grunnskólakennslu með áherslu á list- og verkgreinar.

Scroll to Top