Mengjakennsla hjá skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
Tónlistarnemendum er raðað í hópa eða „mengi“, sem hitta kennara sinn fjórum sinnum í viku í einkatímum og í hóptímum. Hugmyndin er að nemendur æfi sig yfirleitt ekki heima, heldur fer tónlistarnámið og æfingaiðkunin alla jafna fram innan veggja grunnskólans.
Í meðfylgjandi myndbandi fer Snorri Heimisson, stjórnandi skólahljómsveitarinnar yfir fyrirkomulag svokallaðrar „mengjakennslu“. Hugmyndin er að nemendur æfi sig yfirleitt ekki heima, heldur fer tónlistarnámið og æfingaiðkunin alla jafna fram innan veggja grunnskólans, þar sem þeim er raðað í hópa eða „mengi“ sem fá kennslutíma fjórum sinnum í viku í einkatímum og í hóptímum.