Höfundur:

Helga Þórdís Guðmundsdóttir

Hljómleikur – kennslubók í ukulele- og hljómborðsleik

Hljómleikur er auðveld og barnvæn kennslubók í ukulele- og hljómborðsleik og hjálpar byrjendum að læra að leika einfalda hljóma. Gengið er út frá því að allflest kunni lögin í bókinni þannig að auðvelt er að einbeita sér að hljóðfærunum og því að leika á þau. Bókin er hugsuð sem söngeflandi námsefni, og er hvatt til þess að lögin í henni séu sungin jafnframt því að leika hljómana sem eru gefnir við textana.

Vettvangar

Óskilgreint, Tónlistarnám í tónlistar- og listaskólum, Tónmennt í skóla- og frístundastarfi

Hljóðfæraflokkar

Námsstig tónlistarskóla

Viðfangsefni

Kennslufræði og kennsluhættir, Tónlistararfur og tónmenning

Gerð efnis

Leiðbeiningar, Námsbækur

HljómleikurÞegar nemandi hefur farið í gegn um Hljómleik er líklegt að hann hafi náð þeirri færni að geta farið á netið, fundið texta við lög á sínu áhugasviði og í flestum tilfellum leikið uppgefna hljóma við þau. Segja má að bókin brúi bilið milli þess að vera alger byrjandi og þess að geta nýtt sér uppgefna texta með hljómgerðum í bókum eða á internetinu.

Hljómleikur er afrakstur meistaraverkefnis Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur við listkennsludeild Listaháskóla Íslands – https://skemman.is/handle/1946/36498. Verkefnið var eitt sjö meistaraverkefna sem fékk viðurkenningu skóla- og frístundaráðs í janúar 2021. Fylgjast má með fréttum af bókinni á Facebook og hafa samband við Helgu Þórdísi, sem býður upp á námskeið þar sem stuðst er við efni bókarinnar.

Scroll to Top