Síðan er ætluð sem gagnabanki og tæki fyrir kennara í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi til þess að styðja við og efla söng og tónlist í starfi.
Tónlistarnám í leikskóla, Tónmennt í skóla- og frístundastarfi
Hljóðfæraflokkar
Námsstig tónlistarskóla
Viðfangsefni
Kennslufræði og kennsluhættir, Tónlistararfur og tónmenning
Gerð efnis
Efnisveitur, Hljóðskrár, Myndbönd, Vefsíður
Markmið verkefnisins er að auka almennan söng í skólum og rjúfa múra milli tónmenntakennslu og annarrar kennslu. Kenna einföld grunnatriði og kynna tæknistudd tækifæri til að styðja við söng sem hluta af daglegu starfi í almennri kennslu jafnvel þó kennarar „kunni ekki neitt í tónlist“, en átti sig á mikilvægi almenns söngs með börnum byggt á þeim fjöldamörgu rannsóknum sem styðja við þennan þátt.