Tónakistan – námsefni fyrir skapandi tónlistariðkun í leikskóla og yngsta stigi grunnskóla
Efni og gögn fyrir skapandi tónlistarstundir í leikskólastarfi og á yngsta stigi grunnskóla. Kennsluefnið er fullt af leikjum og verkefnum sem taka stuttan tíma og eru auðveld í framkvæmd en virkja börn í tónlist og sköpun.
Vettvangar
Kennsla yngri barna, Tónlistarnám í leikskóla, Tónmennt í skóla- og frístundastarfi
Hljóðfæraflokkar
Námsstig tónlistarskóla
Viðfangsefni
Kennslufræði og kennsluhættir
Gerð efnis
Leiðbeiningar, Vefsíður
Ávinningur hvers verkefnis getur verið mismunandi, allt frá því að þjálfa einbeitingu og biðlund yfir í að þekkja hljóðfæri, skapa hljóðheim og einfaldlega kynnast því að spila tónlist. Með kennsluefninu fylgir hljóðfærakassi sem kallast „Tónakista“ og inniheldur hljóðfæri sem sérstaklega eru ætluð börnum.
Í þróunarvinnu Tónakistunnar var útgangspunkturinn hvernig hægt væri að koma upplýsingum til skila á sem einfaldastan og aðgengilegastan hátt, án þess að kröfur væru gerðar á skólann að eiga mikinn búnað til þess að geta verið með skapandi tónlistarstundir með börnunum. Eitthvað sem hver sem er gæti gripið í án undirbúnings. Kennsluefnið er sett upp í möppu sem skiptist í nokkra kafla eftir innihaldi. Öll verkefnin eru sett upp eins í möppunni með einföldum leiðbeiningum um hvernig skal framkvæma verkefnið og hvaða ávinning það hefur.
