Tónlist er ómissandi hluti af mannlegri tilveru og býr yfir óþrjótandi möguleikum til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið
Hugmyndin á bak við Tónvarpið er að skapa vettvang fyrir umræðu um tónlistariðkun, menntun og miðlun. Kveikjan að vefnum var samtal þátttakenda á ráðstefnunni „Tónlist er fyrir alla“ en þar mættust í Hörpu kennarar og stjórnendur tónlistarskóla til að deila reynslu og þekkingu og rækta tengsl við starfsfélaga.
Þar kom fram skýrt ákall um að fjölga tækifærum til faglegs samstarfs og efla samskipti milli tónlistarskóla annarra skólagerða, félagasamtaka og einstaklinga sem starfa að eflingu tónlistarlífs í landinu. Tónvarpið er því samstarfsvettvangur fyrir öll þau sem vilja veg tónlistar og tónlistariðkunar í samfélaginu sem mestan og að hún fái að hljóma sem víðast í öllum sínum fjölbreytileika.
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) stendur að Tónvarpinu með það að leiðarljósi að bregðast við þeim fjölmörgu ábendingum félagsfólks og annarra sem starfa við tónlist á einn eða annan hátt um að styðja þurfi betur við faglegt samtal og samstarf á sviði tónlistar.
Púlsinn
Í Púlsinum er vakin athygli á margvíslegum viðfangsefnum og málefnum á sviði tónlistar. Þar munu ólíkar raddir af fjölbreyttum vettvöngum tónlistar fá að hljóma í gegnum umfjöllun á ýmsu formi.
Verkfæraskúrinn
Verkfæraskúrinn byggir á samstarfi og því að við deilum hugmyndum og því sem vel hefur reynst hvert með öðru. Hægt er að benda á margvísleg verkfæri svo sem námsefni, nótur, vefsíður, bækur, sölusíður og fleira. Með góðum verkfæraskúr náum við vonandi að mæta fjölbreyttum þörfum sem flestra auk þess að draga fram hvar frekari þróunar, svo sem námsefnisgerðar, er þörf. Í Tónvarpinu verður sérstaklega leitast við að gera nýju íslensku námsefni hátt undir höfði.
Umræðutorgið
Í Umræðutorginu er hægt að ræða um allt sem tengist tónlist, tónlistarkennslu og miðlun. Það er einfalt að hefja umræðu á torginu eða finna málstofur og umræðuefni sem tengjast ykkar áhugasviðum. Við hvetjum ykkur líka til að láta vita af góðum hugmyndum eða ábendingum og vekjum athygli á sérstakri málstofu í Umræðutorginu um Tónvarpið og þróun þess.
Vistkerfið
Vistkerfi Tónvarpsins er enn í vinnslu en heitið á þessum hluta Tónvarpsins vísar til vistkerfis tónlistar, þar sem ólíkar stoðir og einingar tónlistarlífsins – einstaklingar, stofnanir, samfélög og umhverfi – hafa gagnverkandi áhrif hver á aðra.
Vistkerfi Tónvarpins er einmitt meðal annars ætlað að varpa ljósi á það sem hefur áhrif á þróun tónlistarlífs og tónlistarmenntunar og það umhverfi sem tónlist er búið á Íslandi. Hér má til dæmis nefna lög og stefnur, möguleika í starfsþróun, samstarfsvettvanga, fagfélög, útgefið efni og ýmsar stofnanir á sviði tónlistar.
Tónvarpsteymið
Tónvarpsteymið hlakkar til samtalsins og bindur vonir við að þróa Tónvarpið áfram í sem nánustu samstarfi við áhugafólk um tónlist og tónlistarmenntun, þar á meðal þá faghópa og fagfélög sem hafa verið leiðandi í faglegri þróun og stuðningi við tónlistarfólk.
