Björg Þórsdóttir, tónmenntakennari og kórstjóri rannsakaði nýverið tengsl hrynþjálfunar og þróunar lestrarfærni og lesskilnings hjá ungum börnum sem glíma við lestrarörðugleika. Niðurstöðurnar benda til þess að tónmenntakennsla í grunnskólum geti haft mikilvæg áhrif á lestrarþjálfun, sérstaklega í yngstu bekkjum þar sem lestrarfærni þróast hratt. Rannsóknin vekur athygli á mikilvægi þess að tónmennt sé kennd sem faggrein í grunnskólum og að taktur og tónar, sem eru náskyld tungumálinu, styðji við heyrnrænan skilning sem er undirstaða lestrar.
Hér má lesa um helstu niðurstöður rannsóknarinnar en í Tónvarpinu er ætlunin að benda reglulega á rannsóknir sem gerðar eru á sviði tónlistar.
